Kvitt er ný leið til að borga fyrir vörur og þjónustu með símanum. Allar greiðslur með Kvitt eru beinar millifærslur og eiga sér stað samstundis.
Til að skrá þig í Kvitt þarftu að vera með snjallsíma og hafa rafræn skilríki á SIM-kortinu þínu.
Það er bæði fljótlegt og einfalt að borga með Kvitt.
-Þú auðkennir þig inn í Kvitt
-Þú velur borga
-Þú berð símann að kubbnum sem merktur er Kvitt
-Þú staðfestir upphæðina
... og ert búin(n) að borga
Þú getur líka millifært, skoðað færslur og kannað stöðu reiknings með Kvitt.